
Útskýringar
3G
Þriðju kynslóðar farsímakerfi. Stafrænt kerfi fyrir farsíma sem miðar að hnattrænni notkun
og veitir aukna bandvídd. Með 3G fær notandi fjarskiptabúnaðar aðgang að margs konar
þjónustu, líkt og margmiðlun.
Beintenging (ad-hoc)
Í þráðlausu staðarneti gerir beintengingin (ad hoc) þér kleift að senda og taka við gögnum
frá öðrum tækjum með samhæfan stuðning við þráðlaust staðarnet. Til að þetta sé hægt
gætirðu þurft forrit frá þriðja aðila. Ekki þarf aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet. Aðeins
þarf að velja nauðsynlegar stillingar. Uppsetning beintenginga er auðveld í framkvæmd en
samskipti eru takmörkuð við þau tæki sem eru innan ákveðins svæðis og sem styðja samhæfa
staðarnetstækni.
Fótspor
Fótspor eru svolitlar upplýsingar sem miðlarinn gefur notanda til að geyma upplýsingar um
heimsóknir á vefsvæði. Þegar tekið er við fótsporum getur miðlarinn metið notkun
viðkomandi á vefsvæðinu, áhugasvið notanda, lestrarsmekk o.s.frv.
DNS
Þjónusta lénaheita. Internetþjónusta sem þýðir lénsheiti, eins og www.nokia.com, yfir í IP-
númer líkt og 192.100.124.195. Það er auðveldara að muna lénsheiti en þessi þýðing er
nauðsynleg vegna þess að internetið byggist á IP-númerum.
DTMF-tónar
Dual Tone Multi-Frequency tónar. Tónvalssímar nota DTMF-kerfið. DTMF úthlutar hverjum
takka tilgreinda tíðni, eða tón, svo að örtölvuverkið geti auðveldlega borið kennsl á hann.
Með DTMF-tónum er hægt að eiga samskipti við talhólf, tölvustýrð símkerfi og svo framvegis.
EAP
Extensible authentication protocol. EAP-viðbætur eru notaðar fyrir sannvottun á milli
þráðlausra tækja og sannvottunarmiðlara á þráðlausum netum.
EGPRS
Þróað GPRS. EGPRS er svipað GPRS en býður upp á enn hraðari tengingu. Þjónustuveitan veitir
nánari upplýsingar um framboð og áskrift að EGPRS og flutningshraða.
GPRS
General packet radio service. GPRS gerir farsímum kleift að tengjast gagnanetum með
þráðlausri tengingu (sérþjónusta). GPRS notast við pakkagagnatækni þar sem upplýsingar eru
sendar í stuttum gagnakippum um farsímakerfið. Kosturinn við að senda gögn í pökkum er
að símkerfið er aðeins upptekið þegar gögn eru send eða móttekin. Þar sem GPRS notast við
símkerfið á skilvirkan hátt gerir það kleift bæði að setja gagnatengingar upp hratt og mikinn
hraða gagnaflutninga.
Þú verður að vera í áskrift að GPRS-þjónustunni. Nánari upplýsingar um framboð og áskrift
að GPRS fást hjá þjónustuveitu.
Meðan á símtali venjulegu stendur er ekki hægt að koma á GPRS-tengingu og allar virkar GPRS-
tengingar eru settar í bið, nema að símkerfið styðji tvöfaldan gagnaflutning.
GPS
Global positioning system. GPS er þráðlaust leiðsagnarkerfi sem nær yfir allan hnöttinn.
HSDPA
High-speed downlink packet access. HSDPA flytur háhraðagagnasendingar í 3G-endastöðvar,
og tryggir að notendur sem þurfa á skilvirkum margmiðlunarmöguleikum að halda hagnist
á gagnahraða sem áður var ekki í boði vegna takmarkana fjarskiptakerfisins.
HTTP
Hypertext transfer protocol. Samskiptareglur fyrir skjöl sem notaðar eru á vefnum.
HTTPS
HTTP um örugga tengingu.
IMAP4
Internet mail access protocol, útgáfa 4. Samskiptareglur sem notaðar eru til að fá aðgang að
ytra pósthólfi.
Netaðgangsstaður
Aðgangsstaður er staðurinn þar sem tækið tengist við netkerfi. Áður en hægt er að nota
tölvupóst og margmiðlunarþjónustu eða tengjast við internetið og opna vefsíður verður að
tilgreina aðgangsstaði fyrir þessa þjónustu.
Grunnet
Grunnnetið býður upp á tvenns konar samskipti: þráðlaus tæki hafa samskipti við hvert annað
um aðgangsstað á þráðlausu staðarneti (LAN) eða þá að þau hafa samskipti við snúrutengt
staðarnetstæki um þráðlausan aðgangsstað. Kosturinn við aðgangsstaði er að þú hefur meiri
stjórn á tengingum. Þráðlaust tæki getur opnað þá þjónustu sem er í boði í venjulegu
snúrutengdu staðarneti: s.s. gagnagrunna fyrirtækis, tölvupóst, internetið og valkosti
netkerfa.
PIN
Personal identity number. PIN-númerið ver þig fyrir því að óviðkomandi noti tækið þitt. PIN-
númerið fylgir með SIM-kortinu. Ef beiðni um PIN-númer er valin þarf að gefa upp númerið í
hvert skipti sem kveikt er á tækinu. PIN-númerið verður að vera 4 til 8 tölustafir.
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
80

PIN2
PIN2-númerið fylgir með sumum SIM-kortum. Gefa þarf upp PIN2-númerið til að fá aðgang
að ákveðnum aðgerðum sem SIM-kortið styður. Lengd PIN2-númersins er 4 til 8 tölustafir.
POP3
Post office protocol, útgáfa 3. Staðlaðar póstsamskiptareglur sem má nota til að fá aðgang
að ytra pósthólfinu.
SIP
Session initiation protocol. SIP-reglur eru notaðar til að koma á, breyta og slíta vissum
tegundum samskipta við einn eða fleiri þátttakendur.
SSID
Service set identifier. SSID er heiti sem auðkennir tiltekið þráðlaust staðarnet.
Straumspilun
Við straumspilun eru skrár spilaðar beint af internetinu án þess að þeim sé fyrst hlaðið niður
í tækið.
UMTS
Universal mobile telecommunications system. UMTS er þriðju kynslóðar farsímakerfi. Auk
símtala og gagnasendinga er einnig hægt að senda hljóð- og hreyfimyndir til þráðlausra tækja
um UMTS-farsímakerfi.
Þegar tækið er notað í GSM- og UMTS-símkerfum er hægt að hafa margar gagnatengingar í
gangi samtímis og aðgangsstaðir geta deilt gagnatengingu. Í UMTS-símkerfinu er ekki slökkt
á gagnatengingu þegar símtal er í gangi. Til dæmis er hægt að skoða vefsíður með meiri hraða
en áður var mögulegt um leið og talað er í símann.
UPIN
PIN-númer notað í UMTS-símkerfi.
USIM
SIM-kort notað í UMTS-símkerfi.
USSD-skipun
Þjónustubeiðni, eins og beiðni um að ræsa forrit eða breyta ýmsum stillingum utan frá, sem
hægt er að senda símafyrirtækinu eða þjónustuveitunni með tækinu.
Netsímtöl (VoIP)
Voice over internet protocol technology. VoIP eru samskiptareglur sem auðvelda símtöl yfir
IP-net, eins og internetið.
VPN
Virtual private network. VPN kemur á öruggri tengingu við samhæft innra net fyrirtækja og
þjónustu, eins og t.d. tölvupóst.
WAP
Wireless application protocol. WAP er alþjóðlegur staðall fyrir þráðlaus samskipti.
WEP
Wired equivalent privacy. WEP er dulkóðunaraðferð sem dulkóðar gögn áður en þau eru send
á þráðlausu neti.
Þráðlaus staðarnet
Þráðlaust staðarnet. Tengingu við þráðlaust staðarnet er komið á þegar þú kemur á
gagnatengingu með því að nota internetaðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet. Þegar þú lokar
gagnatengingunni er þráðlausu staðarnetstengingunni einnig lokað.
Ef þú færir tækið til innan þráðlauss staðarnets og úr færi við aðgangsstað þess finnur
reikiaðgerðin sjálfkrafa nýjan aðgangstað fyrir tækið þitt innan sama nets. Á meðan þú ert í
færi við aðgangsstaði sem tilheyra sama neti getur tækið þitt haldið tengingunni við það net.
WPA
Wi-Fi varinn aðgangur. Öryggisaðferð fyrir þráðlaust staðarnet.
WPA2
Wi-Fi varinn aðgangur 2. Öryggis fyrir þráðlaust net.
Ú t s k ý r i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
81