
Handvirk uppsetning aðgangsstaðar fyrir þráðlaust staðarnet
1. Veldu >
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Aðgangsstaðir
.
2. Veldu
Valkostir
>
Nýr aðgangsstaður
til að búa til nýjan aðgangsstað eða veldu aðgangsstað sem fyrir er af listanum og
síðan
Valkostir
>
Afrita aðgangsstað
til að nota aðgangsstaðinn sem grunn að nýja aðgangsstaðnum.
3. Færðu inn eftirfarandi stillingar:
•
Nafn tengingar
— Sláðu inn lýsandi heiti fyrir tenginguna.
•
Flutningsmáti
— Veldu
Þráðlaust staðarnet
.
•
Heiti þráðl. staðarnets
— Til að slá inn SSID (service set identifier), það er heitið sem ber kennsl á þráðlausa staðarnetið,
velurðu
Slá inn handvirkt
. Til að velja netið úr tiltækum þráðlausum staðarnetum velurðu
Leita að netum
.
•
Staða þráðlausa netsins
—
Falið
er valið ef kerfið sem þú tengist við er falið annars er
Sýnilegt
valið.
•
Gerð þráðl. staðarnets
— Ef þú velur
Grunnnet
geta tæki haft samskipti við hvert annað og við fasttengd staðarnetstæki
gegnum aðgangsstað þráðlauss staðarnets. Með
Sértækt
senda og móttaka tæki gögn beint frá hvort öðru og ekki er þörf
á aðgangsstað.
•
Öryggi þráðl. staðarnets
— Velja verður sömu öryggisstillingu og notuð er fyrir aðgangsstað þráðlausa staðarnetsins. Ef
þú velur WEP (wired equivalent privacy), 802.1x, eða WPA/WPA2 (Wi-Fi varinn aðgangur) þarftu einnig að gera
nauðsynlegar viðbótarstillingar.
•
Öryggisstillingar
— Breyttu öryggisstillingunum fyrir valið
Öryggi þráðl. staðarnets
.
•
Heimasíða
— Sláðu inn vefslóð síðunnar sem þú vilt birta sem heimasíðu þegar þú notar þennan aðgangsstað.