
WLAN-hjálp
Veldu >
Tengingar
>
St.net.hjálp
.
WLAN-hjálpin auðveldar þér að finna og tengjast við þráðlaust staðarnet. Þegar forritið er opnað leitar tækið að þráðlausum
staðarnetum og birtir þau í lista.
Til að uppfæra listann yfir þráðlaus staðarnet sem eru í boði skaltu velja
Valkostir
>
Uppfæra
.
Til að hefja eða halda áfram vafri á vefnum í gegnum aðgangsstað þráðlauss staðarnets flettirðu á staðarnet og velur
Valkostir
>
Ræsa vefskoðun
eða
Halda skoðun áfram
.
Veldu
Valkostir
>
Aftengjast v. staðarn.
til að slíta tengingu við þráðlaust staðarnet
Upplýsingar um þráðlausa staðarnetið eru opnaðar með því að velja
Valkostir
>
Upplýsingar
.
Veldu
Valkostir
>
Tilgreina aðg.stað
til að tilgreina internetaðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet.
Gerðu alltaf eina af tiltækum dulkóðunaraðferðum virka til að auka öryggi þráðlausrar staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar
dregur úr hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án heimildar.
Hjálpin notuð á virkum biðskjá
Í virkum biðskjá sýnir WLAN-hjálpin stöðu þráðlausra staðarnettenginga og staðarnetleita. Valkostir eru skoðaðir með því að
fletta að röðinni sem sýnir stöðuna og ýta á skruntakkann. Þú getur ræst vafrann þegar þú ert tengd/ur við þráðlaust staðarnet,
aftengst við staðarnetið, leitað að staðarnetum og kveikt og slökkt á sjálfvirkri leit. Þessir valkostir fara eftir stöðu þinni.
Ef slökkt er á leit staðarneta og tækið er ekki tengt við staðarnet sést
Slökkt á staðarnetsleit
í virkum biðskjá. Til að kveikja á
leit og leita að þráðlausum staðarnetum flettirðu að röðinni sem sýnir stöðuna og ýtir á skruntakkann.
Til að ræsa leit að þráðlausum staðarnetum flettirðu að stöðuröðinni, ýtir á skruntakkann og velur
Leita að staðarnetum
. Til að
slökkva á leit að þráðlausum staðarnetum flettirðu að stöðuröðinni, ýtir á skruntakkann og velur
Slökkva á sjálfv. leit
.
Þegar
Ræsa vefskoðun
er valið býr uppsetningarhjálpin sjálfkrafa til aðgangsstað fyrir það þráðlausa staðarnet sem er valið.
Einnig er hægt að nota aðgangsstaðinn með öðrum forritum sem þurfa þráðlausa staðarnettengingu.
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
49

Ef þú velur öruggt þráðlaust staðarnet er beðið um lykilorð. Nauðsynlegt er að slá inn SSID-kóða til að tengjast við falið staðarnet.