
Efni flutt á milli tækja
Veldu >
Verkfæri
>
Flutningur
.
Hægt er að flytja efni (t.d. tengiliði) úr samhæfu Nokia tæki í Nokia E90 Communicator tækið um Bluetooth eða með innrauðri
tengingu. Það hvaða efni er hægt að flytja fer eftir gerð tækisins. Ef hitt tækið styður samstillingu er einnig hægt að samstilla
gögn á milli tækisins og Nokia E90 Communicator.
Ef þú flytur gögn úr eldra tæki kann það að fara fram á að þú setjir inn SIM-kort. Ekki er nauðsynlegt að SIM-kort sé í Nokia E90
Communicator þegar gögn eru flutt.
Gögn flutt með Bluetooth
1. Veldu
Halda áfram
á upplýsingaskjánum.
2. Veldu
Með Bluetooth
. Bæði tækin verða að styðja flutningsmátann sem er valinn.
3. Virkjaðu Bluetooth í hinu tækinu þínu og veldu
Halda áfram
í Nokia E90 Communicator til að hefja leit að tækjum með virka
Bluetooth-tengingu.
4. Veldu
Stöðva
í Nokia E90 Communicator eftir að hann hefur fundið hitt tækið þitt.
5. Veldu hitt tækið þitt af listanum. Beðið er um að þú færir inn aðgangskóða (1 til 16 stafa) í Nokia E90 Communicator.
Aðgangskóðinn verður einungis notaður einu sinni til að staðfesta þessa tengingu.
6. Sláðu kóðann inn í Nokia E90 Communicator og veldu
Í lagi
. Sláðu kóðann inn í hitt tækið og veldu
Í lagi
. Tækin hafa nú verið
pöruð.
Sjá „Pörun tækja“, bls. 45.
Á sumum gerðum tækja er forritið
Flytja gögn
sent í hitt tækið í skilaboðum. Opnaðu skilaboðin til að setja forritið
Flytja
gögn
upp í hinu tækinu og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
7. Í Nokia E90 Communicator skaltu velja efnið sem þú vilt flytja úr hinu tækinu.
Gögn flutt um innrautt tengi
1. Veldu
Halda áfram
á upplýsingaskjánum.
2. Veldu
Um innrautt
. Bæði tækin verða að styðja flutningsmátann sem er valinn.
3. Tengdu tækin tvö.
Sjá „Innrauð tenging “, bls. 47.
4. Í Nokia E90 Communicator skaltu velja efnið sem þú vilt flytja úr hinu tækinu og svo
Í lagi
.
Efnið er afritað úr minni hins tækisins og sett á viðeigandi stað á tækinu þínu. Afritunartíminn veltur á því gagnamagni sem er
afritað. Þú getur hætt við afritunina og haldið henni áfram síðar.
Nauðsynlegar aðgerðir fyrir gagnaflutning geta verið breytilegar eftir tækjum, og því hvort þú hafir hætt við gagnaflutning
áður. Þeir hlutir sem hægt er að flytja geta verið mismunandi eftir hinu tækinu.