Nokia E90 Communicator - Global Positioning System (GPS)

background image

Global Positioning System (GPS)

Veldu >

GPS

.

GPS (Global Positioning System) er þráðlaust leiðsagnarkerfi sem nær yfir allan hnöttinn og samanstendur af 24 gervitunglum

og jarðstöðvum sem vakta þau.
GPS-útstöð, líkt og GPS-móttökutækið í Nokia E90 Communicator, tekur á móti lágorku-útvarpsmerkjum frá gervitunglunum og

mælir ferðatíma merkjanna. GPS-móttökutækið getur svo notað ferðatímann til að reikna staðsetningu sína með nokkurra

metra nákvæmni.
Hnitin eru sýnd í gráðum og tugabrotsgráðum með WGS-84 hnitakerfinu.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð á nákvæmni þess og viðhaldi. Nákvæmni

staðsetningargagna kann að verða fyrir áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn og kann

að breytast í samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa

leiðsögu. Slæm rúmfræði gervihnatta getur einnig haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar, náttúrulegar hindranir auk

veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði GPS-merkja. Aðeins ætti að nota GPS-móttakarann utanhúss til að taka á

móti GPS-merkjum.
Aðeins ætti að nota GPS sem aðstoð við leiðsögu. Ekki ætti að nota það fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti

að treysta eingöngu á staðsetningargögn GPS-móttakarans.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki fullkominn og sléttunarvillur eru mögulegar. Nákvæmnin veltur einnig á móttöku og gæðum

GPS-merkja.