
Algengar aðgerðir í ýmsum forritum
Eftirfarandi aðgerðir er að finna í ýmsum forritum:
Til að breyta um snið, slökkva á tækinu eða læsa því skaltu ýta snöggt á rofann.
Ef margir flipar eru í forriti er flett til hægri eða vinstri til að opna flipa.
Til að vista breytingar á stillingum í forriti velurðu
Til baka
.
Til að vista skrá velurðu
Valkostir
>
Vista
. Vistunarmöguleikar fara eftir því hvaða forrit er verið að nota.
Til að senda skrá velurðu
Valkostir
>
Senda
. Hægt er að senda skrár í tölvupósti, með margmiðlunarskilaboðum, Bluetooth eða
innrauðri tengingu.
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
15

Texti er afritaður með því að halda skiptitakkanum inni og velja textann með skruntakkanum. Haltu skiptitakkanum inni og
veldu
Afrita
. Til að líma skaltu fletta að staðnum þar sem líma á textann inn, halda skiptitakkanum inni og velja
Líma
. Ekki er
víst að hægt sé að nota þessa aðferð í forritum þar sem eru sérstakar skipanir til að afrita og líma.
Til að velja mismunandi atriði, til dæmis skilaboð, skrár eða tengiliði, skaltu fletta að atriðinu sem á að velja. Veldu
Valkostir
>
Merkja/Afmerkja
>
Merkja
til að velja eitt atriði, eða
Valkostir
>
Merkja/Afmerkja
>
Merkja allt
til að velja öll atriðin.
Ábending: Til að velja nánast öll atriðin skaltu fyrst velja
Valkostir
>
Merkja/Afmerkja
>
Merkja allt
, velja svo atriðin
sem þú vilt og síðan
Valkostir
>
Merkja/Afmerkja
>
Afmerkja
.
Til að velja hlut (til dæmis viðhengi í skjali) skaltu fletta að hlutnum þannig að ferhyrnd merki birtist sitt hvoru megin við hlutinn.