
Snið
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum eða nota aðra valkosti þar sem þörf er á tengingu
við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt að hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að hringja verður
fyrst að virkja símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá inn lykilnúmerið.
Veldu >
Verkfæri
>
Snið
.
Þú getur stillt og sérsniðið hringitóna, viðvörunartóna og aðra tóna tækisins fyrir mismunandi viðburði, umhverfi og
viðmælendahópa. Það snið sem er í notkun hverju sinni sést efst á skjánum í biðstöðu. Ef sniðið
Almennt
er í notkun birtist
aðeins dagsetningin.
Ótengdur
sniðið hindrar þig í að kveikja óvart á tækinu, senda eða taka á móti skilaboðum, nota þráðlaust staðarnet, Bluetooth,
GPS eða FM-útvarp. Það lokar einnig öllum þeim internettengingum sem eru virkar þegar sniðið er valið. Ótengda sniðið kemur
ekki í veg fyrir að nýjum þráðlausum staðarnetstengingum eða Bluetooth-tengingum sé komið á seinna eða að GPS eða FM-
útvarp sé endurræst. Fylgdu því viðeigandi öryggisráðstöfunum þegar þú notar þessa möguleika.
Ábending: Hægt er að velja nýtt snið í hvaða skjá sem er með því að ýta snöggt á rofann. Veldu sniðið sem þú vilt virkja.
Til að búa til nýtt snið skaltu velja
Valkostir
>
Búa til nýtt
og tilgreina stillingarnar.
Til að sérstilla snið velurðu það og svo
Valkostir
>
Sérsníða
.
Til að breyta sniði velurðu sniðið og svo
Valkostir
>
Gera virkt
. Ef sniðið Ótengdur er valið er ekki hægt að senda eða taka á
móti skilaboðum.
Til að eyða sniði sem þú hefur búið til skaltu velja
Valkostir
>
Eyða sniði
. Þú getur ekki eytt forstilltu sniðunum.