Nokia E90 Communicator - Stillingahjálp

background image

Stillingahjálp

Veldu >

Verkfæri

>

Stillingahjálp

.

Stillingahjálpin er notuð til að stilla tækið fyrir símafyrirtækið (MMS, GPRS og internet), tölvupóst, kallkerfi (sérþjónusta) og

samnýtingu myndskeiða (sérþjónusta) samkvæmt upplýsingum frá símafyrirtækinu.
Til að nota þessa þjónustu getur verið að þú þurfir að hafa samband við eða þjónustuveituna þína til að koma á gagnatengingu

eða annarri þjónustu.
Ef Stillingahjálpin er ekki í boði hjá þjónustuveitunni er ekki víst að hún birtist í valmynd tækisins. Nánari upplýsingar um

Stillingahjálp fást hjá símafyrirtækinu þínu, þjónustuveitunni eða söluaðila.
Framboð mismunandi stillinga í Stillingahjálp fer eftir eiginleikum tækisins, SIM-kortinu, þjónustuveitunni og framboði á

gögnum í gagnagrunni Stillingahjálpar.
Hjálpin er ræst með því að velja

Byrja

. Þegar hjálpin er notuð í fyrsta sinn er þér hjálpað í gegnum stillingarnar. Ef ekkert SIM-

kort er í tækinu þarftu að velja heimaland símafyrirtækisins og símafyrirtækið sjálft. Ef landið eða símafyrirtækið sem hjálpin

stingur upp á er ekki það rétta skaltu velja það af listanum. Stillingarnar eru ekki tilgreindar ef valið á þeim er rofið. Þegar

hjálpinni hefur verið lokað er hægt að byrja að nota forritin sem stillt voru.
Til að opna aðalskjá stillingahjálparinnar eftir að hún hefur lokið við að velja stillingarnar velurðu

Í lagi

.

Á aðalskjánum skaltu velja

Valkostir

og svo úr eftirfarandi:

Símafyrirtæki

— Til að velja stillingar sem eru bundnar símafyrirtækinu, eins og MMS, internet, WAP og straumstillingar.

Tölvupóstur

— Velja stillingar fyrir tölvupóst.

Kallkerfi

— Velja stillingar kallkerfis.

Samn. hreyfim.

— Velja stillingar fyrir samnýtingu hreyfimynda.

Mismunandi getur verið hvaða valkostir eru í boði.
Ef þú getur ekki notað Stillingahjálpina skaltu leita að stillingum á vefsíðu Nokia: www.nokia.com.