
Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia
Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að ganga úr skugga um að þú notir ósvikna Nokia rafhlöðu skaltu
kaupa hana af viðurkenndum söluaðila Nokia og skoða heilmyndarmiðann líkt og lýst er í eftirfarandi skrefum:
Þó svo þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé ósvikin. Hafir þú minnstu
ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með hana til viðurkennds
þjónustu- eða söluaðila Nokia. Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna hvort rafhlaðan sé ósvikin. Ef ekki er hægt að
staðfesta að rafhlaðan sé ósvikin skaltu skila rafhlöðunni til verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.