Nokia E90 Communicator - Myndskeið og straumspilun

background image

Myndskeið og straumspilun

Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.

Til að spila myndskeið eða hljóðskrá velurðu

Valkostir

>

Opna

>

Nýjustu skrár

til að spila eitt af þeim sex myndskeiðum sem

þú spilaðir síðast eða

Vistaða skrá

til að spila myndskeið eða opna tengil. Veldu

Spila

.

Til að straumspila efni skaltu velja tengil sem vísar í hljóð- eða myndskrá og velja

Spila

; eða tengjast við internetið, fletta að

hreyfimynd eða hljóðskrá og velja

Spila

. RealPlayer þekkir tvær gerðir tengla: rtsp:// og http:// slóðir sem vísa í RAM-skrá. Áður

en straumspilun efnisins hefst þarf tækið þitt að tengjast vefsetri og vista efnið í biðminni. Ef vandamál við tengingu valda villu

í spilun reynir RealPlayer sjálfkrafa að tengjast aftur við netaðgangsstaðinn.
Flettu til hægri eða vinstri til að stilla hljóðstyrkinn meðan á spilun stendur.
Til að spóla áfram á meðan spilað er skaltu fletta upp og halda inni takkanum. Til að spóla til baka á meðan spilað er skaltu

fletta niður og halda inni takkanum.
Til að stöðva spilun eða straumspilun skaltu velja

Stöðva

. Ef vistun í biðminni eða tenging við straumspilunarstað stöðvast

stöðvast sömuleiðis spilun skrárinnar og hún hefst aftur frá byrjun.
Til að hlaða myndskeiðum niður af vefnum velurðu

Valkostir

>

Sækja hreyfimyndir

.

Til að skoða myndskeiðið í fullri skjástærð, veldu

Valkostir

>

Spila á öllum skjá

. Full skjástærð eykur stærð hreyfimyndarinnar

þannig að hún nær yfir eins stóran hluta af skjánum án þess að skekkja sniðhlutfallið.

Ábending: Til að skipta á milli venjulegs skjás og alls skjásins á fljótlegan hátt ýtirðu á 2 á takkaborðinu.