Nokia E90 Communicator - Hlustað á tónlist

background image

Hlustað á tónlist

Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn.

Til að velja lag velurðu

Valkostir

>

Tónlistarsafn

.

Öll lög

birtir lista yfir alla tónlist í tækinu þínu. Til að skoða lög í ákveðinni röð

velurðu

Plötur

,

Flytjendur

,

Stefnur

eða

Höfundar

.

Veldu

Valkostir

>

Spila

til að spila lag. Hlé er gert á spilun lags með því að fletta að og ýta á skruntakkann.

Til að spóla áfram á meðan spilað er skaltu fletta upp og halda inni takkanum. Til að spóla til baka á meðan spilað er skaltu

fletta niður og halda inni takkanum.
Til að velja næsta lag á undan eða á eftir er flett upp eða niður.
Flettu til hægri eða vinstri til að stilla hljóðstyrkinn. Til að taka hljóðið af flettirðu til vinstri þar til hljóðið er farið af.
Til að hætta að spila lag flettirðu að og ýtir á skruntakkann.
Til að spila tónlistarskrár endurtekið skaltu velja

Valkostir

>

Endurtaka

. Veldu

Öll lög

til að endurtaka öll lög í núverandi möppu,

Eitt

til að endurtaka lagið sem er valið eða

Óvirkt

til að hætta endurtekningu.

Til að spila tónlist af handahófi skaltu velja möppu og

Valkostir

>

Spilun af handahófi

.

Eftir að tónlistarskrám hefur verið bætt í tækið eða eytt úr því þarf að uppfæra tónlistarsafnið. Veldu

Valkostir

>

Uppfæra

Tónlistarsafn

. Tónlistarspilarinn leitar að tónlistarskrám í minni tækisins og uppfærir upplýsingarnar í tónlistarsafninu.

Til að skoða upplýsingar um lag velurðu

Valkostir

>

Skoða upplýsingar

.