
Reiknivél
Veldu >
Skrifstofa
>
Reiknivél
.
Til athugunar: Nákvæmni reiknivélarinnar er takmörkuð og hún er ætluð til einfaldra útreikninga.
Til að reikna skaltu slá inn fyrstu töluna í útreikningnum. Veldu valkost af aðgerðakortinu, til dæmis samlagningu eða frádrátt.
Sláðu inn aðra tölu útreikningsins og veldu =.
Reiknivélin reiknar tölur í þeirri röð sem þær eru slegnar inn. Útkoman birtist á skjánum og hægt er að nota hana sem fyrstu
töluna í nýjum útreikningi.
Til að vista niðurstöðu útreiknings velurðu
Valkostir
>
Minni
>
Vista
. Fyrri niðurstöðu er skipt út í minninu fyrir nýju
niðurstöðuna.
Til að sækja niðurstöður útreiknings úr minninu og nota þær við útreikning velurðu
Valkostir
>
Minni
>
Úr minni
.
Veldu
Valkostir
>
Síðasta útkoma
til að skoða síðustu vistuðu niðurstöðu. Talan er áfram í minninu þó svo að forritinu sé lokað
eða slökkt sé á tækinu. Hægt er að sækja vistuðu niðurstöðuna næst þegar reiknivélin er opnuð.