Nokia E90 Communicator - Netsímtöl

background image

Netsímtöl

Tækið styður símtöl um internetið (netsímtöl). Tækið reynir fyrst og fremst að koma á neyðarsímtölum í farsímakerfum. Ef

neyðarsímtal tekst ekki í farsímakerfi reynir tækið neyðarsímtal um þjónustuveitu netsímtala. Vegna þeirrar útbreiðslu sem

farsímatækni hefur náð skal nota farsímakerfi fyrir neyðarsímtöl þar sem það er hægt. Ef farsíminn er innan þjónustusvæðis

skal ganga úr skugga um að kveikt sé á honum og að hægt sé að hringja áður en reynt er að hringja neyðarsímtal. Möguleikinn

á neyðarsímtölum um internetið fer eftir tiltækni þráðlauss staðarnets og því hvort þjónustuveitan hafi sett símann upp fyrir

slík símtöl. Nánari upplýsingar um neyðarsímtöl um internetið fást hjá þjónustuveitu netsímtala.
Veldu >

Tengingar

>

Netsími

.

Með netsímaþjónustunni (sérþjónusta) er hægt að hringja og svara símtölum um internetið með VoIP-tækninni (voice over

internet protocol). Hægt er að koma á netsímtölum á milli tölva, milli farsíma og milli VoIP-tækja og venjulegs síma. Til að

hringja eða taka við netsímtali verður tækið þitt að vera innan WLAN-svæðis.
Mismunandi er hvort þjónustan er í boði eftir löndum eða svæðum.