
Skilaboð
Veldu >
Skilaboð
.
Í Skilaboðum (sérþjónusta) geturðu sent og tekið við textaskilaboðum, margmiðlunarskilaboðum og tölvupóstskeytum. Einnig
er hægt að taka við vefþjónustuboðum, skilaboðum frá endurvarpa, sérstökum skilaboðum sem innihalda gögn, og senda
þjónustuskipanir.
Áður en þú getur sent eða tekið á móti skilaboðum gætir þú þurft að gera eftirfarandi:
• Setja gilt SIM-kort í tækið og vera innan þjónustusvæðis.
• Ganga úr skugga um að símkerfið styðji þá gerð skilaboða sem á að senda og að opnað hafi verið fyrir þau á SIM-kortinu.
• Færa inn stillingar fyrir internetaðgangsstað (IAP) í tækinu.
Sjá „Aðgangsstaðir“, bls. 68.
• Færa inn stillingar fyrir tölvupóst í tækinu.
Sjá „Stillingar pósthólfa“, bls. 33.
• Tilgreina stillingar textaskilaboða á tækinu.
Sjá „Stillingar textaboða“, bls. 33.
• Tilgreina stillingar textaskilaboða á tækinu.
Sjá „Stillingar margmiðlunarskilaboða“, bls. 33.
Verið getur að tækið beri kennsl á söluaðila SIM-kortsins og færi sjálfkrafa inn ákveðnar stillingar fyrir skilaboð. Ef ekki þarftu
hugsanlega að færa stillingarnar inn handvirkt, eða hafa samband við þjónustuveituna til að fá stillingarnar.
Skilaboð og gögn sem berast um Bluetooth eða innrauða tengingu eru vistuð í möppunni
Innhólf
. Tölvupóstskeyti eru vistuð í
Pósthólf
. Hægt er að vista skrifuð skilaboð í möppunni
Uppköst
. Skilaboð sem bíða sendingar eru vistuð í möppunni
Úthólf
og
skilaboð sem hafa verið send, fyrir utan þau sem send eru um Bluetooth og innrauða tengingu, eru vistuð í möppunni
Sendir
hlutir
.
Ábending: Skilaboð eru sett í Úthólf þegar tækið er t.d. utan þjónustusvæðis. Þú getur einnig beðið um að
tölvupóstskeyti verði send næst þegar þú tengist við ytra pósthólf.
Hægt er að biðja símkerfið að senda skilatilkynningar fyrir send texta- og margmiðlunarskilaboð (sérþjónusta) með því að velja
Valkostir
>
Stillingar
>
SMS
eða
Margmiðlunarboð
>
Tilkynning um skil
. Tilkynningarnar eru vistaðar í möppunni
Tilkynningar
.