
Kynning búin til
Ekki er hægt að búa til margmiðlunarkynningar ef
MMS-gerð
er stillt á
Takmörkuð
. Stillingunni er breytt með því að velja
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
>
MMS-gerð
>
Allt
.
1. Til þess að búa til kynningu velurðu
Ný skilaboð
>
Margmiðlunarboð
.
2. Í reitnum
Viðtak.
færirðu inn símanúmer eða netfang viðtakanda eða ýtir á skruntakkann til að setja inn viðtakanda úr
Tengiliðir. Ef þú slærð inn fleiri en eitt númer eða netfang skaltu aðskilja þau með semíkommu.
3. Veldu
Valkostir
>
Búa til kynningu
og svo sniðmát fyrir kynningu. Sniðmát getur skilgreint hvaða hljóð- og myndskrár eru
settar inn í kynninguna, hvar þær eru staðsettar, sem og umbreytingu á milli mynda og skyggna.
4. Veldu textasvæðið og sláðu inn textann.
5. Til að setja myndir, hljóð, hreyfimyndir eða minnismiða inn í kynninguna skaltu velja svæðið og svo
Valkostir
>
Setja inn
.
6. Til að setja inn skyggnur skaltu velja
Setja inn
>
Nýja skyggnu
.
Kynningin er forskoðuð með því að velja
Valkostir
>
Forskoða
. Aðeins er hægt að skoða margmiðlunarkynningar í samhæfum
tækjum. Þær kunna að líta aðeins öðruvísi út í öðrum tækjum.
Veldu
Valkostir
>
Stillingar bakgrunns
til að velja bakgrunnslit kynningarinnar og bakgrunnsmyndir fyrir mismunandi skyggnur.
Til að stilla hvernig skipt er á milli mynda eða skyggna velurðu
Valkostir
>
Stillingar áhrifa
.