
Spjallskilaboð
Veldu >
Tengingar
>
Spjall
.
Spjallið (sérþjónusta) gerir þér kleift að hafa samband við annað fólk með því að nota spjallskilaboð og taka þátt í umræðuhópum
(spjallhópum) þar sem rætt er um ákveðin málefni. Þjónustuveitur halda úti spjallmiðlurum sem þú getur skráð þig inn á þegar
þú hefur gerst áskrifandi að þjónustunni. Mismunandi er hvaða aðgerðir þjónustuveitur styðja.
Ef spjall er ekki í boði hjá þjónustuveitunni er ekki víst að það birtist í valmynd tækisins. Hafðu samband við þjónustuveituna
til að fá nánari upplýsingar um áskrift að spjalli og gjaldskrá. Nánari upplýsingar um stillingar fyrir spjall fást hjá þjónustuveitunni.
Stillingarnar kunna að berast í sérstökum textaskilaboðum frá þjónustuveitunni sem býður upp á spjallþjónustuna. Ef svo er
ekki þarf að færa stillingarnar inn handvirkt.