Nokia E90 Communicator - Spjallstillingar tilgreindar

background image

Spjallstillingar tilgreindar

Veldu

Valkostir

>

Stillingar

>

Spjallstillingar

til að tilgreina stillingar spjallforritsins. Meðal annars er hægt að velja skjánafn

og tóna fyrir spjall.
Þú þarft að skrá þig inn á spjallmiðlara áður en þú getur spjallað við annan notanda eða notendur, sem og til að skoða og breyta

spjallnotendunum þínum. Til að bæta við spjallmiðlara velurðu

Valkostir

>

Stillingar

>

Stillingar miðlara

>

Miðlarar

. Réttar

stillingar fást hjá þjónustuveitunni. Til að stilla miðlarann þannig að tækið skrái sig sjálfkrafa inn á hann skaltu velja

Valkostir

>

Stillingar

>

Stillingar miðlara

>

Sjálfgefinn miðlari

.

Til að tilgreina hvernig tækið tengist við spjallmiðlarann skaltu velja

Valkostir

>

Stillingar

>

Stillingar miðlara

>

Gerð innskr.

á spjall

. Til að koma sjálfkrafa á tengingu á milli tækisins og sjálfgefna miðlarans velurðu

Sjálfvirk

. Til að koma tengingunni

aðeins á sjálfkrafa í heimanetinu velurðu

Sj. á heimasímk.

Til að tengjast við miðlarann þegar spjallforritið er opnað velurðu

Við

ræs. forrits

. Til að koma tengingu við miðlarann á handvirkt velurðu

Handvirk

og skráir þig inn á miðlarann í aðalskjá spjallsins

með því að velja

Valkostir

>

Innskráning

. Sláðu inn notandakenni og lykilorð þegar beðið er um það. Þú getur fengið

notandanafnið, lykilorðið og aðrar stillingar fyrir innskráningu frá þjónustuveitunni þinni þegar þú skráir þig fyrir þjónustunni.