Stillingar pakkagagna
Veldu >
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Pakkagögn
.
Tækið þitt styður pakkagagnatengingar, eins og GPRS í GSM-símkerfi. Þegar þú notar tækið í GSM- og UMTS-símkerfum er hægt
að hafa margar gagnatengingar virkar á sama tíma; aðgangsstaðir geta deilt gagnatengingu og gagnatengingar haldast virkar,
t.d. á meðan á símtali stendur.
Sjá „Stjórnandi tenginga“, bls. 44.
Til að tilgreina stillingar pakkagagna velurðu
Pakkagagnatenging
og svo
Ef samband næst
til að skrá tækið á
pakkagagnasímkerfi þegar kveikt er á tækinu í studdu símkerfi eða
Ef með þarf
til að koma á pakkagagnatengingu einungis
þegar forrit eða aðgerð þarf á henni að halda. Veldu
Aðgangsstaður
og færðu inn heiti aðgangsstaðarins sem þjónustuveitan
lætur þér í té, til að nota tækið sem pakkagagnamótald fyrir tölvuna þína.
Þessar stillingar hafa áhrif á alla aðgangsstaði fyrir pakkagagnatengingar.