Nokia E90 Communicator - Java-öryggisstillingar

background image

Java-öryggisstillingar

Til að velja öryggisstillingar fyrir Java-forrit velurðu >

Uppsetn.

>

Stjórnandi forrita

>

Valkostir

>

Stillingar

.

Hægt er að velja hvaða aðgerðum Java-forritið hefur aðgang að. Aðgerðavalkostirnir sem hægt er að velja velta á léni

hugbúnaðarpakkans.

Símkerfisaðgangur

— Koma á gagnatengingu við símkerfið.

Skilaboð

— Senda skilaboð.

Sjálfvirk ræsing

— Opna forritið sjálfkrafa.

Tengimöguleikar

— Virkja staðbundnar gagnatengingar, líkt og Bluetooth.

Margmiðlun

— Taka myndir eða taka upp hreyfimyndir eða hljóð.

Lesa gögn notanda

— Skoða dagbókaratriði, tengiliði eða önnur persónuleg gögn.

Breyta notandagögnum

— Bæta inn persónulegum gögnum, t.d. færslum í Tengiliði.

Hægt er að tilgreina hvernig Java-forrit biður um staðfestingu á aðgangi að aðgerðum tækisins. Veldu einhvern af eftirfarandi

valkostum:

Spyrja alltaf

— Til að Java-forritið biðji þig um staðfestingu í hvert sinn sem það notar valkostinn.

Í fyrsta skiptið

— Til að Java-forritið biðji aðeins um staðfestingu í fyrsta skiptið sem það notar valkostinn.

Alltaf leyft

— Til að leyfa Java-forritinu að nota valkostinn án staðfestingar. Öryggisstillingarnar hjálpa til við að vernda tækið

gegn skaðlegum Java-forritum sem gætu notað aðgerðir þess án þinnar heimildar. Veldu aðeins

Alltaf leyft

valkostinn ef þú

veist hver framleiðandinn er og ert viss um áreiðanleika forritsins.

Ekki leyft

— Til að hindra að Java-forritið noti valkostinn.