
Stillingar fyrir uppsetningu
Til að breyta uppsetningarstillingum velurðu
Valkostir
>
Stillingar
og svo úr eftirfarandi:
•
Eyða
— Uppsetningarskrá hugbúnaðarpakkans er eytt úr tækinu að uppsetningu lokinni. Ef hugbúnaðarpökkum er hlaðið
niður í gegnum vafra getur það sparað geymsluminni. Ef þú vilt geyma skrá hugbúnaðarpakkans svo þú eigir kost á því að
setja hann upp aftur skaltu ekki velja þennan valkost nema þú eigir afrit af hugbúnaðinum í samhæfri tölvu eða á geisladiski.
•
Velja tungumál:
— Ef hugbúnaðarpakkinn inniheldur fleiri en eitt tungumál skaltu velja tungumálið fyrir uppsetninguna.
•
Tegund
— Tilgreindu hvers konar forrit þú vilt setja upp. Hægt er að velja að setja aðeins upp forrit með viðurkenndum
vottorðum. Aðeins er hægt að velja þessa stillingu fyrir forrit í Symbian-stýrikerfinu (.sis skrár).