Nokia E90 Communicator - Uppsetning forrita

background image

Uppsetning forrita

Hægt er að setja upp tvenns konar forrit og hugbúnað í tækinu:
• Forrit og hugbúnað sem er sérstaklega ætlaður fyrir tækið eða samhæfur við Symbian-stýrikerfið. Þessar uppsetningarskrár

hafa endinguna .sis.

• J2ME™ forrit sem samhæf eru við Symbian stýrikerfið. Uppsetningarskrár Java forrita hafa endinguna .jad eða .jar.

© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.

72

background image

Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfri tölvu, hlaða þeim niður af vefnum og fá þær sendar í

margmiðlunarskilaboðum, sem tölvupóstsviðhengi eða um Bluetooth. Ef þú flytur skrá í tækið með Nokia PC Suite skaltu vista

skrána í möppunni C:\nokia\installs í tölvunni.
Meðan á uppsetningu stendur kannar tækið hvort pakkinn sem á að setja upp sé heill og gallalaus. Tækið sýnir upplýsingar um

prófanirnar sem eru í gangi og hægt er að velja að halda áfram með uppsetninguna eða hætta við hana.
Ef þú setur upp forrit sem þurfa nettengingu skaltu hafa í huga að orkunotkun tækisins kann að aukast þegar forritin eru notuð.

Ábending: Þegar vefsíður eru skoðaðar er hægt að hlaða niður uppsetningarskrá og setja hana upp strax . Athugaðu

að tengingin er virk í bakgrunninum meðan á uppsetningu stendur.

Veldu

Sækja forrit

til að sækja og setja upp hugbúnað af vefnum. Veldu því næst forrit og svo

Valkostir

>

Setja upp

.

Til að skoða upplýsingar um uppsettan hugbúnaðarpakka skaltu velja forritið og

Valkostir

>

Skoða frekari uppl.

.

Til að skoða uppsetningarskrána velurðu

Valkostir

>

Skoða notk.skrá

. Listi sýnir hvaða hugbúnaður hefur verið settur upp eða

eytt út ásamt dagsetningu aðgerðanna. Ef vart verður við truflanir í tækinu eftir að hugbúnaðarpakki hefur verið settur upp er

hægt að nota listann til að finna hugbúnaðarpakkann sem veldur trufluninni. Upplýsingarnar á listanum geta einnig hjálpað til

við að staðsetja truflanir af völdum ósamhæfra hugbúnaðarpakka.
Til að fjarlægja hugbúnað velurðu

Valkostir

>

Fjarlægja

. Þegar hugbúnaður er fjarlægður er aðeins hægt að setja hann upp

aftur með því að nota upprunalegu hugbúnaðarskrána eða með því að setja upp afrit sem inniheldur allan hugbúnaðarpakkann

sem hefur verið fjarlægður. Ef hugbúnaðarpakka er eytt er ekki víst að hægt sé að opna skrár sem voru búnar til með honum.

Ef hugbúnaðarpakkinn sem verið er að fjarlægja hefur áhrif á annan hugbúnaðarpakka gæti sá pakki hætt að virka. Þú finnur

nánari upplýsingar í leiðbeiningunum sem fylgja með hugbúnaðarpökkum.