
Hleðsla rafhlöðunnar
1. Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2. Tengdu snúru hleðslutækisins við tækið. Ef rafhlaðan er alveg tóm gæti liðið einhver tími þar til hleðsluvísirinn byrjar að
hreyfast.
3. Þegar rafhlaðan er fullhlaðin skaltu fyrst taka hleðslutækið úr sambandi við tækið og síðan úr innstungunni.
Rafhlaðan hefur þegar verið hlaðin í verksmiðjunni, en ekki er víst að hún sé fullhlaðin. Til að hámarka notkunartíma tækisins
skaltu hlaða rafhlöðuna að fullu (hleðslustaðan sést á hleðsluvísinum).
Ábending: Ef þú notar eldri og samhæfa gerð af Nokia-hleðslutæki geturðu notað það með Nokia E90 Communicator
með því að tengja CA-44 millistykkið við hleðslutækið. Millistykkið er fáanlegt sem aðskilinn aukahlutur.