Nokia E90 Communicator - Bluetooth

background image

Bluetooth

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2,0 sem styður eftirfarandi snið: Dial-up Networking Profile, Object Push

Profile, File Transfer Profile, Handsfree Profile, Headset Profile, Basic Imaging Profile, SIM Access Profile, Generic Object Exchange

Profile, Generic Access Profile, Generic Audio/Video Distribution Profile, Advanced Audio Distribution Profile, and Audio/Video

Remote Control Profile. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukahluti sem eru

viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta

tæki.
Veldu >

Tengingar

>

Bluetooth

.

Bluetooth-tækni gefur notendum kost á þráðlausri tengingu á milli tveggja rafeindatækja sem eru í innan við 10 metra (33 feta)

fjarlægð frá hvort öðru. Hægt er að nota Bluetooth-tengingu til að senda myndir, hreyfimyndir, texta, nafnspjöld, minnismiða

í dagbókum og til að tengjast við önnur tæki sem nota Bluetooth-tækni, líkt og tölvur.
Þar sem tæki sem nota Bluetooth-tækni hafa samskipti með útvarpsbylgjum þurfa tækið þitt og tækið sem það er tengt við

ekki að vera staðsett beint á móti hvort öðru. Tækin tvö þurfa einungis að vera í innan við 10 metra fjarlægð frá hvort öðru.

Truflanir geta þó orðið á tengingunni vegna veggja eða annarra rafeindatækja.
Hægt er að hafa fleiri en eina Bluetooth-tengingu virka í einu. Til dæmis er hægt að flytja skrár úr tækinu þó að það sé tengt

við höfuðtól.