Nokia E90 Communicator - Sending og móttaka gagna með Bluetooth

background image

Sending og móttaka gagna með Bluetooth

Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á sumum stöðum. Kanna skal það hjá yfirvöldum á staðnum eða

þjónustuveitunni.
Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru notaðar krefjast

aukinnar rafhlöðuorku og minnka endingu rafhlöðunnar.
1. Þegar kveikt er á Bluetooth í fyrsta skipti er beðið um að tækinu sé gefið nafn. Gefðu tækinu þínu auðþekkjanlegt nafn svo

auðveldara verði að bera kennsl á það þegar mörg Bluetooth-tæki eru á svæðinu.

2. Veldu

Bluetooth

>

Kveikt

.

3. Veldu

Sýnileiki síma míns

>

Sýnilegur öllum

eða

Tilgreina tímabil

. Ef þú velur

Tilgreina tímabil

þarftu að tilgreina þann tíma

sem tækið þitt er sýnilegt öðrum. Notendur annarra Bluetooth-tækja geta nú séð tækið og nafnið sem var slegið inn.

4. Opnaðu forritið sem geymir hlutinn sem þú vilt senda.
5. Veldu hlutinn og svo

Valkostir

>

Senda

>

Með Bluetooth

. Tækið leitar að Bluetooth-tækjum innan svæðisins og birtir þau

í lista.

Ábending: Ef gögn hafa áður verið send um Bluetooth birtist listi með fyrri leitarniðurstöðum. Til að leita að fleiri

Bluetooth-tækjum velurðu

Fleiri tæki

.

6. Veldu tækið sem þú vilt tengjast við. Ef hitt tækið fer fram á pörun áður en hægt er að flytja gögn er beðið um aðgangskóða.
Textinn

Sendi gögn

birtist þegar tengingunni hefur verið komið á.

Mappan Sent í forritinu Skilaboð vistar ekki skilaboð sem hafa verið send um Bluetooth.
Til að sækja gögn með Bluetooth velurðu

Bluetooth

>

Kveikt

og

Sýnileiki síma míns

>

Sýnilegur öllum

til að sækja gögn frá

ópöruðu tæki eða

Falinn

til að sækja eingöngu gögn frá pöruðu tæki. Þegar gögn berast um Bluetooth heyrist tónn og spurt er

hvort taka eigi á móti skilaboðunum sem innihalda gögnin. Ef þú samþykkir eru skilaboðin sett í innhólfsmöppuna í forritinu

Skilaboð.

Ábending: Hægt er að nálgast skrárnar í tækinu eða á minniskortinu með því að nota samhæfan aukahlut sem styður

FTP (til dæmis fartölvu).

Sjálfkrafa er slökkt á Bluetooth-tengingu eftir að gögn hafa verið send eða móttekin. Aðeins er hægt að hafa tengingar sem

ekki er verið að nota í gangi ef tengingin er við PC Suite eða aukabúnað, eins og höfuðtól.