
Innrauð tenging
Ekki má beina innrauðum (IR) geisla að augum eða láta hann trufla önnur innrauð tæki. Þetta tæki er leysitæki í flokki 1 (Class
1 laser product).
Innrauð tenging er notuð til að tengja saman tvö tæki og flytja gögn á milli þeirra. Hægt er að flytja gögn eins og nafnspjöld,
dagbókaratriði og skrár milli samhæfra tækja um innrauða tengingu.
Gögn send og móttekin
1. Gakktu úr skugga um að innrauð tengi tækjanna snúi hvort að öðru. Staðsetning tækjanna er mikilvægari en hornið eða
fjarlægðin á milli þeirra.
2. Veldu >
Tengingar
>
Innrauð
til að kveikja á innrauðri tengingu tækisins.
3. Kveiktu svo á innrauðu tengingunni á hinu tækinu og bíddu í augnablik þar til innrauðu tengingunni hefur verið komið á.
4. Finndu skrána í forriti eða skráastjóranum og veldu
Valkostir
>
Senda
>
Með IR
.
Ef gagnasending hefst ekki innan mínútu eftir að kveikt hefur verið á innrauða tenginu er slökkt á tengingunni.
Allir hlutir sem eru mótteknir um innrautt tengi eru fluttir í möppuna Innhólf í Skilaboð.
Þegar tækin eru of langt frá hvoru öðru rofnar tengingin á milli þeirra. Þegar það gerist lýsir innrauði geislinn áfram á tækinu
þínu þar til slökkt er á tengingunni.