
Frekari stillingar netaðgangsstaðar fyrir gagnasímtöl
Eftir að settur hefur verið upp netaðgangsstaður fyrir
Gagnasímtal
eða
Háhraða (GSM)
skaltu velja
Valkostir
>
Frekari
stillingar
og færa inn eftirfarandi stillingar:
•
IPv4 stillingar
— Færðu inn IP-tölu tækisins og vistföng nafnamiðlara fyrir IPv4 Internet-samskiptareglur.
T e n g i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
47

•
IPv6 stillingar
— Sláðu inn IP-tölu tækisins og vistföng nafnamiðlara fyrir IPv6 Internet-samskiptareglurnar.
•
Veff. proxy-miðlara
— Sláðu inn IP-tölu proxy-miðlara.
•
Númer proxy-gáttar
— Færðu inn gáttarnúmer proxy-miðlara. Proxy-miðlarar eru milliliðir vafraþjónustu og notenda sem
sumar þjónustuveitur nota. Þessir miðlarar geta boðið upp á aukið öryggi og hraðari aðgang að þjónustunni.
•
Nota svarhringingu
— Veldu
Já
ef þú notast við þjónustu sem hringir aftur í tækið þitt þegar þú tengist netinu.
•
Teg. svarhringingar
— Veldu
Nota nr. miðlara
eða
Nota annað nr.
, samkvæmt leiðbeiningum frá þjónustuveitu.
•
Nr. fyrir svarhring.
— Sláðu inn gagnasímtalsnúmer tækisins sem svarhringingarmiðlarinn notar.
•
Nota PPP-þjöppun
— Veldu
Já
til að hraða gagnaflutningnum ef ytri PPP-miðlarinn styður það.
•
Nota innskráningu
— Veldu
Já
ef þjónustuveitan krefst innskráningarforskriftar eða ef þú kýst að innskráningin fari fram
sjálfkrafa. Innskráningarforskrift er röð leiðbeininga sem kerfið fylgir meðan á innskráningu stendur.
•
Innskráning
— Sláðu inn innskráningarforskriftina. Þessi stilling er aðeins í boði ef þú hefur valið
Nota innskráningu
>
Já
.
•
Strengur f. ræs. mótalds
— Sláðu inn skipanastreng fyrir uppsetningu tengingarinnar ef þjónustuveitan krefst þess.