Uppsetning aðgangsstaðar fyrir gagnasímtöl
1. Veldu >
Verkfæri
>
Stillingar
>
Tenging
>
Aðgangsstaðir
.
2. Veldu
Valkostir
>
Nýr aðgangsstaður
til að búa til nýjan aðgangsstað eða veldu aðgangsstað sem fyrir er af listanum og
síðan
Valkostir
>
Afrita aðgangsstað
til að nota aðgangsstaðinn sem grunn að nýja aðgangsstaðnum.
3. Færðu inn eftirfarandi stillingar:
•
Nafn tengingar
— Sláðu inn lýsandi heiti fyrir tenginguna.
•
Flutningsmáti
— Veldu
Gagnasímtal
eða
Háhraða (GSM)
.
•
Innhringinúmer
— Sláðu inn símanúmerið á mótaldi aðgangsstaðarins. Notaðu + á undan landsnúmerum.
•
Notandanafn
— Sláðu inn notendanafn ef þjónustuveitan krefst þess. Í notandanöfnunum sem þjónustuveitan lætur þér
í té er yfirleitt gerður greinarmunur á há- og lágstöfum.
•
Biðja um lykilorð
— Veldu
Já
til að slá inn lykilorðið þitt í hvert sinn sem þú skráir þig inn á miðlara, eða
Nei
til að vista
lykilorðið í minni tækisins og gera innskráningu sjálfvirka.
•
Lykilorð
— Sláðu inn lykilorðið ef þjónustuveitan krefst þess. Þjónustuveitan lætur lykilorðið yfirleitt í té og er þar gerður
greinarmunur og há- og lágstöfum.
•
Aðgangskort
— Veldu
Öruggt
til að senda alltaf dulkóðað lykilorð, eða
Venjulegt
til að senda dulkóðað lykilorð þegar það
er mögulegt.
•
Heimasíða
— Sláðu inn vefslóð síðunnar sem þú vilt birta sem heimasíðu þegar þú notar þennan aðgangsstað.
•
Tegund gagnasímtals
— Veldu
Hliðræn
,
ISDN v.110
eða
ISDN v.120
.
•
Hámarks gagnahraði
— Veldu takmörkun á flutningshraða. Ef þú velur
Sjálfvirkur
ræðst flutningshraðinn af símkerfinu
og getur verið breytilegur eftir álagi á því. Sumar þjónustuveitur gætu tekið meira gjald fyrir aukinn gagnahraða.
4. Þegar grunnstillingarnar hafa verið færðar inn skaltu velja
Valkostir
>
Frekari stillingar
til að færa inn frekari stillingar eða
Til baka
til að vista stillingarnar og loka.