
SIM-aðgangssnið
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins hægt að hringja og svara símtölum með samhæfum aukahlut sem er
tengdur við það (t.d. bílbúnaði). Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið sem
er forritað í tækið. Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur verið læst skal fyrst slá inn
lykilnúmerið til að opna það.
Með SIM-aðgangssniðinu getur þú komist inn á SIM-kortið í tækinu þínu um samhæfan bílbúnað. Þannig þarftu ekki annað SIM-
kort til að komast í upplýsingar á SIM-kortinu og tengjast við GSM-símkerfi.
Til að nota SIM-aðgangssniðið þarftu eftirfarandi:
• Samhæfan bílbúnað sem styður þráðlausa Bluetooth-tækni
• Gilt SIM-kort í Nokia E90 Communicator
Nánari upplýsingar um bílbúnað og samhæfni við Nokia E90 Communicator er að finna á www.nokia.com og í notendahandbók
bílbúnaðarins.
SIM-aðgangssniðið notað
1. Veldu >
Tengingar
>
Bluetooth
>
Ytra SIM
>
Kveikt
.
2. Gerðu Bluetooth virkt í bílbúnaðinum.
3. Notaðu bílbúnaðinn til að hefja leit að samhæfum tækjum. Leiðbeiningar er að finna í notendahandbók bílbúnaðarins.
4. Veldu Nokia E90 Communicator af listanum yfir samhæf tæki.
5. Paraðu tækin með því að slá inn aðgangskóða Bluetooth sem birtist á skjá bílbúnaðarins í Nokia E90 Communicator.
Ábending: Ef þú hefur þegar farið inn á SIM-kortið úr bílbúnaðinum með virka notandasniðinu leitar bílbúnaðurinn
sjálfkrafa að tæki með því SIM-korti. Ef bílbúnaðurinn finnur Nokia E90 Communicator tækið þitt og virkjar sjálfvirka
leyfið tengist hann sjálfkrafa við GSM-símkerfið þegar bílinn er ræstur.
Þegar snið fyrir ytri aðgang að SIM-korti hefur verið virkjað getur þú notað forrit á tækinu þínu sem þurfa ekki tengingu við
símkerfi eða SIM-þjónustu.
Til að koma á tengingu milli tækisins þíns og bílbúnaðarins án þess að samþykkja það sérstaklega velurðu >
Tengingar
>
Bluetooth
og opnar flipann fyrir pöruð tæki. Flettu að bílbúnaðinum, ýttu á skruntakkann og sláðu inn aðgangskóða Bluetooth.
Þegar tækið fer fram á að gera tenginguna sjálfvirka skaltu velja
Já
. Ef þú velur
Nei
verðurðu að samþykkja beiðnir um tengingu
frá tækinu í hvert skipti.
Til að ljúka ytri SIM-aðgangstengingunni úr tækinu þínu velurðu >
Tengingar
>
Bluetooth
>
Ytra SIM
>
Slökkt
.
T e n g i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
46