Nokia E90 Communicator - Vafrað um Vefinn

background image

Vafrað um Vefinn

Til að vafra um vefinn velurðu bókamerki eða slærð inn veffang handvirkt. Aðeins skal nota þjónustu sem er treyst og sem veitir

nægilegt öryggi og vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.

Ábending: Þegar þú byrjar að slá inn veffangið birtist listi með vefföngum þeirra síðna sem þú hefur áður opnað og

sem passa við það sem þú hefur skrifað. Til að opna síðu flettirðu að henni og ýtir á skruntakkann.

Til að færa þig um á vefsíðu notarðu skruntakkann, sem er sýndur sem bendill á síðunni. Þegar þú færir bendilinn yfir tengil

breytist hann í hönd. Ýttu á skruntakkann til að opna tengilinn. Á vefsíðum eru nýir tenglar vanalega undirstrikaðir með bláu

og tenglar sem áður hafa verið skoðaðir með fjólubláu. Jaðar mynda sem gegna hlutverki tengla er blár.
Vefföng þeirra síðna sem þú opnar eru vistuð í

Sjálfv. bókamerki

möppunni.