
Vinnuumhverfi
Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun annaðhvort í hefðbundinni stöðu við eyrað eða
þegar það er haft að minnsta kosti 1,5 sm (5/8 tommur) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða halda er notuð þegar tækið
er borið á líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki að innihalda málm og halda tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð
frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur sending
gagna eða skilaboða tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til
sendingu er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti
með geymsluminni nálægt tækinu því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.