
Kallkerfi
Veldu >
Tengingar
>
Kallkerfi
.
Kallkerfi (PTT, sérþjónusta) gefur beint talsamband með því að ýta á takka. Með kallkerfi er hægt að nota tækið á sama hátt og
labbrabbtæki.
Þú getur notað kallkerfi til að tala við einn viðmælanda eða hóp fólks eða til að tengjast rás. Rás er eins og spjallrás: þú getur
hringt í rásina til að sjá hvort einhver sé tengdur. Hringingin í rásina heyrist ekki hjá öðrum notendum; notendurnir tengjast
bara rásinni og byrja að tala saman.
Í kallkerfissamskiptum talar einn á meðan aðrir notendur hlusta í innbyggða hátalaranum. Notendur skiptast á um að svara.
Þar sem aðeins einn notandi getur talað í einu er tíminn sem hægt er að tala í einu takmarkaður. Upplýsingar um hversu lengi
hægt er að tala í einu fást hjá þjónustuveitunni.
Áður en þú getur notað kallkerfi þarft þú að tilgreina aðgangsstað og stillingar fyrir kallkerfið. Stillingarnar kunna að berast í
textaskilaboðum frá þjónustuveitunni sem býður upp á kallkerfisþjónustuna.
Símtöl hafa alltaf forgang yfir kallkerfi.