Hringt í kallkerfinu
Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
Til að hringja kallkerfissímtal velurðu
Valkostir
>
Tengiliðir
, velur svo einn eða fleiri tengiliði og ýtir á kallkerfistakkann. Mundu
að halda tækinu framan við þig í kallkerfissímtali þannig að þú sjáir á skjáinn. Skjárinn sýnir hvenær komið er að þér að tala.
Talaðu í hljóðnemann og ekki hafa hendurnar fyrir hátalaranum. Ýttu á kallkerfistakkann og haltu honum inni á meðan þú talar.
Slepptu takkanum þegar þú ert búinn að tala.
Ýtt er á endatakkann til að ljúka kallkerfissímtalinu.
Þegar þér berst kallkerfishringing skaltu ýta á hringitakkann til að svara eða endatakkann til að hafna símtalinu.